fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Roldán
1 af 27

Um eignina

Spánarheimili kynnir:  Flott parhús í framkvæmdum í lokuðum kjarna í Roldán, nálægt Los Alcázares í Murcia héraðinu. Stutt er að komast í hversdags þjónustu og veitingastaði og tekur um 20 mínútur að keyra að Los Alcázares og strendur á því svæði. Eignirnar verða með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 eða 3 baðherbergjum á einni eða tveimur hæðum, fer eftir hversu mörg herbergi eru í húsinu. Hér er um að ræða 76 m2 eignir með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum á tveimur hæð með þaksvölum. Hvert hús er með 174 m2 lóð og er þar af leiðandi með flottan garð með einkasundlaug, útisturtu og bílastæði á lóðinni. Þaksvalirnar koma með útieldhúsi með vask og innstungu fyrir ísskáp. Eldhúsið verður fullinnréttað með ofn, örbylgjuofn, ísskáp, uppþvottavél, háfur og eldhúseyja. Það verða síðan tvær eignir í þessum kjarna með 225 m2 lóðir og húsin sjálf verða 122 m2 með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Stærð frá 76 m2 - 122 m2 Verð frá 311.000 € Tilbúnar til afhendingar september 2026 Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2086 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/144065/beautiful-2-bedroom-semi-detached-house-in-roldan/

Spánarheimili kynnir - Roldán

1053 Spánn - Costa Blanca
45.700.000 kr.601 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð76 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 27 myndir

Upp ↑