fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Pilar de la Horadada
1 af 35

Um eignina

Nýr kjarni af fallegum raðhúsum á 2 hæðum í Pilar de la Horadada. Í kjarnanum eru 32 eignir og er hver eign með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði ásamt næstu strendur á svæðinu. Á jarðhæð má finna nútímalegt eldhús sem er opið til stofu og borðstofu. Einnig er 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi á jarðhæð. Frá stofunni/borðstofunni er gengið út á flotta verönd. Á efri hæðinni eru 2 svefnherbergi sem eru bæði með svalir og eitt sameiginlegt baðherbergi. Frá efri hæð er síðan stigi upp á þaksvalir þar sem er hægt að njóta sólarinnar allan ársins hring. Í miðjunni á kjarnanum er að finna sameiginlega sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Gólfhiti er til staðar inni á baðherbergjum, eldhúsinu og stofunni. Verð frá 325.000 €. Tilbúnar til afhendingar  júlí 2025 Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2223 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/149396/fantastic-townhouse-in-pilar-de-la-horadada/

Spánarheimili kynnir - Pilar de la Horadada

1053 Spánn - Costa Blanca
47.600.000 kr.414 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð115 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 35 myndir

Upp ↑