fasteignasölur.is
Kleppsvegur 36
1 af 23

Um eignina

Nýtt á skrá! Kleppsvegur 36 Reykjavík - 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með svölum inn í skjólgóðan bakgarð.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega og bjarta íbúð við Kleppsveg 36 í Reykjavík. Um er að ræða 108,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með 3 svefnherbergjum, rúmgóðri stofu með gluggum og svölum til suðurs inn í bakgarð hússins. Tvær sérgeymslur í kjallara sem eru 10,9 og 3,2 fermetrar að stærð. 

Eldhúsið er nýlega endurnýjað á smekklegan máta með fallegum innréttingum frá Fríform og nýjum eldhústækjum. Þá var harðparket í stofu og hjónaherbergi endurnýjað árið 2024 ásamt skápum í hjónaherbergi og á gangi. Árið 2024 var vesturgafl hússins klæddur og skipt um glugga á þeirri hlið (austurgafl var klæddur eitthvað áður). Árið 2020 var frérennsli/skólp endurnýjað (undir botnplötu og út frá húsi). Nýjum brunni var komið fyrir og drenlagnir endurnýjaðar við vesturgafl/kjallaraíbúð. Einnig voru vatnslagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar að hluta. Árið 2019 var stigahús málað og teppalagt, eldvarnarhurðir endurnýjaðar og þak yfirfarið og málað (þakjárn og rennur voru endurnýjaðar árið 2008). Malbikuð sameiginleg stæði á framlóð og steypt stétt við inngang.

Stutt er í alla þjónustu (m.a. Laugalæk, Borgartún og Holtagarða) og afþreyingu. Laugardalurinn með allri sinni útivist, Laugardalslauginni, íþróttasvæðum og fallegum gönguleiðum í næsta nágrenni. Leikskóli og grunnskólar í göngufjarlægð.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Með parketi á gólfi og skápum. Gengið er inn í öll rými íbúðar frá holi.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. 
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápaplássi og glugga til suðurs. Útgengi á svalir frá hjónaherbergi.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Er nýlega endurnýjað á afar fallegan máta. Eldhúsinnrétting frá Fríform, AEG eldhústæki og vinylparket. Bakaraofn, spansuðu helluborð og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél. Gluggi til norðurs með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: Með flísum á gólfi, baðkari með sturtutækjum, nýlegri innréttingu við vask og salerni.
Svefnherbergi II: Með plastparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með plastparketi á gólfi og glugga til norðurs.
Geymsla I: Er 10,9 fermetrar að grunnfleti í kjallara.
Geymsla II: Er 3,2 fermetrar að stærð með hillum og glugga.

Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara. Málað gólf og þvottavélar og þurrkari í eigu húsfélags. Vaskur, vinnuborð og gluggi til suðurs.
Þurrkherbergi: Er sameiginlegt í kjallara. Málað gólf, þvottasnúrur, vinnuborð og gluggar til suðurs. Útgengi á baklóð hússins.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg í kjallara. 
Frystiklefi: Er staðsettur í kjallara og hafa eigendur sitt pláss í sameiginlegum frystiklefa.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímssyni lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
74.900.000 kr.691 þ./m²
+3,3% á 1 ári
3. mars 2026Þinglýstur kaupsamningur
72.500.000 kr.669 þ./m²
+31,8% á 4 árum
27. apríl 2022Fyrsta sala
55.000.000 kr.507 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kleppsvegur 36

105 Reykjavík
74.900.000 kr.691 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1956TegundFjölbýlishúsStærð108,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20162692Fasteignamat67.500.000 kr.Brunabótamat48.700.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑