1 af 21
Um eignina
Spánarheimili kynnir:
***Hentugar íbúðir fyrir alla þá sem þurfa aukið öryggi vegna sinnar líkamlegrar heilsu svo og greiðari aðgang að heilbrigðisþjónustu****
***Öllum viðskiptavinum Spánarheimila sem festa sér íbuðir í þessum einstaka kjarna fá Health Premium kortið frá Quiron Salud, alþjóðlega einka sjúkrahúsinu á svæðinu sem talið er með bestu sjúkrahúsunum í Evrópu. Health Premium kortið veitir forgang og betra aðgengi að persónulegri þjónustu og heilsuráðgjöf***
Hér er um að ræða algjöra nýjung á fasteignamarkaðnum á Spáni, sem nýtist fólki sem vill búa í góðu loftslagi og öruggu umhverfi og hafa gott aðgengi að allri heilbrigðisþjónustu.
Fallegur íbúðakjarni í byggingu í Mil Palmeras sem er strandasvæði staðsett rétt sunnan við La Zenia / Cabo Roig (um 10 min akstur) Mil Palmeras er frábær staðsetning á milli Dehesa de Campoamor og Torre de la Horadada þar sem stutt er í þjónustur og veitingastaði sem eruu á svæðinu og eru nokkrar mínútna rölt á næstu strönd með hjóla- og gönguleiðum.
Einnig eru fjölmargir golfvellir í 15 mín. akstri frá þessum íbúðarkjarna.
Þessi íbúðarkjarni samanstendur að fjölbýlishúsi á þremur hæðum með íbúðir á jarðhæð með einkagarð, íbúðir á miðhæð með svölum og þakíbúðir með þaksvölum. Einnig býður kjarninn upp á sameiginlega sundlaug í miðju kjarnans, sameiginlegt félagsherbergi, líkamsrækt og fleira.
Kjarninn býður upp á gott aðgengi fyrir fatlaða og fólk með skerta hreyfigetu eða fólk í hjólastólum. Til dæmis er lyfta ofan í sundlaugina, breiðir gangar og hurðarop í sameign og sérútbúin baðherbergi. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug svo og sameiginlegur samkomusalur fyrir ýmiss konar tímstundir svo og líkamsræktarsalur og aðstöðuherbergi fyir sjúkraþjálfara snyrtiherbergi ofl.
Það er lögð sérstök áhersla á öryggi íbúa og munu allar íbúðir hafa öryggishnapp með neyðarþjónustu allan sólarhinginn, alla daga ársins. Íbúar eru þá beintengdir hjálparmiðstöð Rauða Krossins á spáni sem veitir neyðaraðstoð ef á því þarf að halda. Kostnaður er innifalinn í húsgjöldum.
Íbúðirnar eru hannaðar með opnu skipulagi þar sem alrými er með góðri stofu/borðstofu og vel tengdu eldhúsi. Hægt að fá íbuðirnar afhentar fullbúnar með húsgögnum öllum raftækjum gegn gegn viðbótargreiðslu.
Það er lyfta í húsinu. Stæði í bílakjallara og geymsla fylgir sumum íbúðunum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Stærð íbúða allt frá 67 m2 - 103 m2
Verð frá 157.000 € - 197.000 €
Tilbúið til afhendingar í júní 2024
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2061
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/153201/beautiful-central-building-in-mil-palmeras/
Spánarheimili kynnir - Mil Palmeras
1053 Spánn - Costa Blanca
23.000.000 kr.343 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
TegundFjölbýlishúsStærð67 m²Herbergi2BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF0
Allar 21 myndir
Upp ↑



















