fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Cabo Roig
1 af 24

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsieinbýli í Dehesa de Campoamor. Stutt er í flesta þjónustu og aðeins eru nokkrar mínútur að keyra á vinsæla Cabo Roig strippið. Þar er meðal annars að finna marga og fjölbreytta veitingastaði. Einnig eru aðeins um 10 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Þessi eign er byggð á 500 m2 lóð og er á tveimur hæðum. Það verða 4 svefnherbergi og 4 baðherbergi ásamt ekta amerísku eldhúsi sem er opið til stofu og borðstofu. Á jarðhæð er eldhúsið, stofa, baðherbergi og eitt svefnherbergi sem er líka master svíta og er með einkabaðherbergi. Á neðri hæð eru 3 svefnherbergi og eitt þeirra er með einkabaðherbergi. Einnig er stærðar þvottahús á neðri hæðinni. Öll svefnherbergin eru með flotta innbyggða fataskápa. Á lóðinni er stór og flottur garður ásamt verönd sem er fullkomið grillsvæði. Ásamt því þá er einkasundlaug sem hægt er að fá hitakerfi í. Verð frá 960.000€. Ath. Einnig er hægt að bæta við svefnherbergjum. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2202 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/154230/luxury-villa-in-cabo-roig/

Spánarheimili kynnir - Cabo Roig

1053 Spánn - Costa Blanca
140.600.000 kr.717 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 4 bað
TegundEinbýlishúsStærð196 m²Herbergi8BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 24 myndir

Upp ↑