fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Cabo Roig
1 af 33

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glænýr lúxuskjarni í byggingu á frábærum stað í eftirsótta hverfinu Lomas de Cabo Roig með veitingastaði, matvöruverslun og aðrar þjónustur í göngufjarlægð. Ekki nema ca. 5-10 mínútur að keyra í Zenia Boulevard ásamt næstu ströndum og golfvöllum á Orihuela Costa svæðinu. Þessi frábæri kjarni samanstendur af fjölbýlishúsi á fjórum hæðum með einstökum garði þar sem eigendur fá afnot af sameiginlegri sundlaug kjarnans, líkamsræktarstöð og sameiginlegu skrifstofusvæði (co-sharing) þar sem eigendur geta unnið í félagslegu og opnu umhverfi. Einnig verður bílakjallari þar sem fylgir einkabílastæði og gemyslu með hverri eign. Íbúðir á jarðhæðum, miðhæðum sem snúa í suðausturátt með 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Allar íbúðirnar verða hannaðar með hágæða efnum í opnum og nútímalegum stíl. Eldhúsin koma fullbúin með raftækjum (white goods), baðherbergin koma með golfhita og fylgir loftkæling í öllum herbergjum. Verð frá 299.000€ - 399.000€ Tilbúið til afhendingar í Febrúar 2025. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is   Nánar um svæðið:   Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. --- Eignarnúmer: 2114 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/154310/apartment/new-build/spain/costa-blanca-south/cabo-roig/cabo-roig/

Spánarheimili kynnir - Cabo Roig

1053 Spánn - Costa Blanca
54.100.000 kr.721 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð75 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 33 myndir

Upp ↑