1 af 10
Um eignina
Spánarheimili kynnir:
Lúxus villur á hinu stórglæsilega íbúðarsvæði Santa Rosalía. Einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Um er að ræða 2 einstaklega vel hönnuð og nútímaleg einbýli á tveimur hæðum með einkasundlaug, þaksvölum og bílastæði inni á lóðinni. Einnig er stór og rúmgóður kjallari í hverri eign. Villurnar eru á bilinu 338fm - 362fm.
Gengið er inn í stóra og bjarta forstofu. Þegar lengra er farið inn í húsið blasir við þér glæsilegt eldhús með nóg af skápaplássi en opið er frá eldhúsi inn í stofu og borðstofu. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottahús. Frá stofunni er gengið út á veröndina en þar er 11 fm einkasundlaug og stigi upp á 55 fm þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn, allt árið.
Það eru 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og 1 gestaklósett í hverri eign. Öll svefnherbergin hafa stóra innbyggða fataskápa með meira en nóg af plássi og aðgengi út á verönd. Master svítan er en-suite og er þá með einkabaðherbergi.
Þegar gengið er stigann niður í kjallara blasir við rúmlega 120 fm rými sem býður upp á marga möguleika.
Verð frá 650.000€ - 675.000€. Innifalið í verði er loftkæling, raftæki í eldhúsi, uppsetning á útieldhúsi á þaksvölum og lýsing bæði innan- og utanhúss.
Virkilega flottar eignir og kaup á eign í Santa Rosalia er góð fjárfesting á einstöku svæði.
Meira er hægt að sjá um svæðið hér: https://spanarheimili.is/santarosalia/
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 1256
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/156747//new-build/spain/costa-calida-murcia/santa-rosalia/santa-rosalia/
Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia
1053 Spánn - Costa Blanca
95.200.000 kr.282 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð338 m²Herbergi5BílskúrJáFasteignanúmerF0
Allar 10 myndir
Upp ↑








