1 af 7
Um eignina
Ný fjölbýli á fallegu svæði í Condado De Alhama, Murcia. Hér er um að ræða 4 blokkir með alls 32 ódýrum en fallegum íbúðum, með 8 íbúðum í hverri blokk, 2 íbúðir á hverri hæð. Byggt í fyrstu línu við stórkostlegan 18 holu golfvöll. Íbúðirnar samanstanda af opnu eldhúsi með rúmgóðri stofu-borðstofu, 2 svefnherbergjum (eitt en-suite) og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar eru með fallegu útsýni yfir nærliggjandi svæði. Með jarðhæðunum er stór einkagarður en miðhæðir með 16 fm svalir. Með öllum eignum fylgir sérmerkt bílastæði og sameiginleg geymsla er á sólarþaki.
Eignirnar eru tilbúnar til afhendingar í september 2024. Verð frá 153.500 €.
Nánar um svæðið:
Alhama sýslan - Murcia er 20 mín frá Corvera-Murcia flugvelli og einnig Mazarrón-flóa sem býður uppá fjölbreyttar strendur og smábátahöfn. Um 30 mínútur eru til Murcia og Cartagena borgar. Glæsilegt svæði með frábæru golfsvæði og leiksvæði fyrir börn. Gott úrval sundlauga er í samfélaginu og vel viðhaldnir garðar eru víða. Einnig er verslunarhúsnæði á staðnum sem býður upp á fjölda kaffihúsa og veitingastaða, matvörubúð og aðra þjónustu. Hljóðlátt og rólegt hverfi með lítilli bílaumferð. Svæðið er vaktað allan sólarhringinn.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2217
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/158539/elegant-apartments-in-condado-de-alhama/
Spánarheimili kynnir - Alhama de Murcia and surrounding area
1053 Spánn - Costa Blanca
26.800.000 kr.377 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð71 m²Herbergi4BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF0
Allar 7 myndir
Upp ↑





