Um eignina
Húsið er 2.057fm. að grunnfleti og var áður nýtt sem veislusalur, veitingastaður- og eldhúsþjónusta sem og mötuneyti. Breytingar hafa verið gerðar á húsnæðinu og er húsnæðið í dag aðlagað starfsemi þjónustumiðstöðvar og skólastarfsemi. Eignin býður því upp á marga nýtingamöguleika.
Góð aðkoma er að húsinu, stórt malbikað bílaplan.
Ásbrú er vel staðsett og ört stækkandi hverfi innan Reykjanesbæjar. Hverfið er þungamiðjan í framtíðarskipulagi bæjarins og í mikilli nálægð við alþjóðarflugvöll sem mun skapa mörg tækifæri í náinni framtíð.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Grænásbraut 619
Staðsetning
Allar 45 myndir
Upp ↑











































