fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Cabo Roig
1 af 40

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Endaraðhús í fyrstu línu við strönd! Um er að ræða lokaðan kjarna sem samanstendur af 8 húsum með sameiginlegum sundlaugargarði, grænu svæði og óheftu sjávarútsýni. Ströndin er í göngufæri og stutt er í alla þjónusta, s.s. verslanir, veitingastaði, heilsugæslu og apótek. Eignin er á 3 hæðum auk bílskúrs í kjallara og er lyfta á milli hæða. Svefnherbergin eru 4 og baðherbergin sömuleiðis. Stór stofa og borðstofa eru í sameiginlegu rými á jarðhæð sem og rúmgott eldhús og þvottahús. Sér verönd er framan við húsið og útgengt er úr eldhúsi á verönd baka til en þar er jafnframt bílastæði. Þrennar svalir eru á húsinu og þar að auki þaksvalir, stór bílskúr og geymsla. Einstök staðsetning við glæsilegar strendur Cabo Roig og Campoamor.   Nánar um svæðið: Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.   Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 1331 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/158855/townhouse/resale/spain/costa-blanca-south/cabo-roig/cabo-roig/

Spánarheimili kynnir - Cabo Roig

1053 Spánn - Costa Blanca
73.800.000 kr.210 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 4 bað
TegundRað-/parhúsStærð352 m²Herbergi8BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 40 myndir

Upp ↑