fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Los Alcazares
1 af 16

Um eignina

Fallegt einbýlishús á einni hæð í íbúðahverfi við La Serena golfvöllinn, í útjaðri Los Alcázares. Bærinn býður upp á alla nauðsynlega þjónustu og er í stuttri fjarlægð frá ströndum Mar Menor. Þessar eignir eru með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Þegar komið er inn tekur á móti manni gangur með svefnherbergjum báðum megin. Húsið hefur tvö baðherbergi, þar af eitt með beinu aðgengi úr rúmgóðu hjónasvítunni. Í miðju hússins er opið rými þar sem stofan, borðstofan og eldhúsið renna saman í eitt. Úr stofunni og hjónasvítunni er beinn aðgangur út í garðinn með fallegri verönd og einkasundlaug. Það er mögulegt að bæta við kjallara og þakverönd, ef óskað er eftir, með stórkostlegu útsýni. Lóðin býður einnig upp á einkabílastæði. Verð frá 559.000 € + 15.900 € fyrir fullbúna eign  Nánar um svæðið: Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.   Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2239 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/159118/townhouses-next-to-the-la-serena-golf-course/

Spánarheimili kynnir - Los Alcazares

1053 Spánn - Costa Blanca
81.900.000 kr.758 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð108 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 16 myndir

Upp ↑