fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Los Alcazares
1 af 29

Um eignina

Spanarheimili kynnir: Þessi fallegu einbýlishús eru staðsett við La Serena golfvöllinn, í útjaðri Los Alcázares. Bærinn er þekktur fyrir afslappað andrúmsloft, ekta miðjarðarhafsstemningu og fallegar strendur Mar Menor. Þessar eignir, af gerðinni Mykonos, standa á lóðum sem eru á bilinu 180,50 m² til 240 m² og bjóða upp á 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Allar eignirnar eru með einkasundlaug og snúa í suðurátt. Húsin einkennast af mjúkum og bogadregnum línum sem undirstrika miðjarðarhafsstílinn. Þau eru bæði glæsileg og hagnýt, þar sem hvert rými er hannað með þægindi í huga. Hægt er að bæta við sólarverönd gegn aukagjaldi upp á 17.500 €. Þorpið býður upp á alla helstu þjónustu og er í nágrenni við nokkra frábæra golfvelli. Afhending í desember 2026 Verð: frá 399.900 € til 449.900 € Nánar um svæðið: Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.   Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2360 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/159334/mediterranean-style-semi-detached-house-next-to-la-serena-golf-course/

Spánarheimili kynnir - Los Alcazares

1053 Spánn - Costa Blanca
58.600.000 kr.538 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð109 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 29 myndir

Upp ↑