fasteignasölur.is
Laugarnesvegur 47
1 af 37

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali  kynnir: Laugarnesvegur 47 - Gott einbýlishús sem skipt hefur verið í fimm íbúðir. Allar íbúðir í útleigu í dag, góðar leigutekjur. Upphitað bílastæði og upphituð stétt í garði. Húsið staðsett á mjög góðum stað í Laugardal.  

Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Sveinbjörnsson - 
löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916 
Baldur Jezorski –
 löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is

Á árunum 2015 - 2016 var húsið mikið endurnýjað og þriðju hæðinni bætt við. Það sem var endurnýjað var: skólp, dren, raflagnir, gler og gluggar, hæð + þak, ofnar og hiti settur í gólf í nokkrum herbergjum.
Í húsinu eru níu herbergi, sex baðherbergi auk sér sturtu inn af einu herbergjanna. Samtalst sjö sturtur. Húsið skiptist í fjórar vel skipulagðar íbúðir. Möguleiki er á að kaupa eignina með öllum húsgögnum.

Fyrsta hæð - Niðurgrafin að hluta. 
Íbúð 1 - Rúmgóð íbúð með eldhúsikrók, sjónvarpsholi og tveimur baðherbergjum og tveimur svefnherbergjum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1: snyrtilegt og rúmgott svefnherbergi með litlum borðkrók og plássi fyrir skáp.
Svefnherbergi 2: lítill borðkrókur, sér baðherbergi inn af svefnherbergi.

Önnur hæð - Tvær íbúðir
Gengið er inn í stóra flísalagða forstofu þar sem gengið er inn í sitthvora íbúðina og stigi er upp í þá þriðju.

Íbúð 2 - Hjónasvíta og stórt baðherbergi.
Gengið er inn í herbergi með eldhús- og borðkrók. Snyrtileg eldhús innrétting með span hellum og flísum á milli borðplötu og skápa. Flísar á gólfi og plastparket að hluta. 
Hjónasvíta er rúmgóð og björt með sjónvarps horni, suð-vestur svölum og stóru baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf

Íbúð 3 - Stúdíó íbúð
Rúmgott svefnherbergi og borðkrókur. Djúpur skápur sem er hægt að nota sem fataskáp. Pláss fyrir stóran fataskáp. 
Hár skápur í eldhúsi, span hellur og flísar á milli borðplötu og hillu. Baðherbergi með sturtu og handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.

Þriðja hæð - Íbúð 4 - mjög góð lofthæð á hæðinni - Rúmlega 3,5 metra lofthæð
Í stiga frá forstofu á miðhæð er innfelld lýsing í hverju þrepi og í lofti fyrir ofan stiga. 
Á efstu hæðinni eru tvö stór svefnherbergi, sjónvarpshol, góð lofthæð og arin. 
Svefnherbergi 1: mjög rúmgott herbergi með sér sturtu. Ljóst plastparket á gólfi.
Svefnherbergi 2. einnig rúmgott herbergi með góðri lofthæð. Möguleiki að vera með sér sjónvarpshorn innan herbergis. Franskar svalir sem snúa í norð-vestur. 
Starfsmaður fasteignasölunar er tengdur eigendum eignarinnar - 2mgr 14. gr. laga um sölu fasteigna og skipa.

Íbúð 5 - 2ja herbergja
Sér inngangur. Nýlega endurnýjuð og góð 2ja herbergja íbúð þar sem bílskúr og hluti að húsi var sameinaður. Nýtt gólfefni og eldhúsinnrétting. 

Möguleiki er á að setja ódýrari eign upp í kaupverð.

Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Sveinbjörnsson - 
löggiltur fasteignasali - halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916 
Baldur Jezorski –
 löggiltur fasteignasali - baldur@fastgardur.is​​​​​​​
​​​​​​​
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
214.900.000 kr.735 þ./m²
+79,1% á 8 árum
7. febrúar 2019Fyrsta sala
120.000.000 kr.410 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laugarnesvegur 47

105 Reykjavík
214.900.000 kr.735 þ./m²
Einbýlishús7 svefn · 5 bað
Byggingarár1935TegundEinbýlishúsStærð292,5 m²Herbergi9InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20186814Fasteignamat183.100.000 kr.Brunabótamat143.830.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑