fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Torrevieja
1 af 50

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsileg ný einbýli mitt á milli Villamartín og Campoamor golfvallana við El Galán í Torrevieja. Um er að ræða kjarna 10 einbýlishúsa sem öll eru með einkasundlaug, þaksvölum, sérgarði og bílastæði innan garðs. Fjögur hús eru nú þegar seld. Húsin sem eru 116.8 fm eru 3 svefnherbergja og 2 baðherbergja á tveimur hæðum auk þaksvala. Lóðirnar eru frá 177 fm til 211 fm. Öll húsin eru með einkasundlaug í garðinum. Svefnherbergi eru öll með innbyggðum fataskápum og lýsing innanhús er innifalin. Að auki er hægt að bæta við aukapökkum eins og: - Vönduðum húsgagnapakka, 10.000€ - Útihúsgögn, 3.500€ - Öll rafmagnstæki í eldhús, 4.000€ - 2 x aircon tæki, 4.500€ Staðsetningin er mjög góð og er stutt til Torrevieja borgar, saltvatna og er flest þjónusta í göngufæri ásamt veitingastöðum og verslunum. Verð frá 399.000€ til 425.000€     Nánar um svæðið: Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.   Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 519 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/160129//new-build/spain/costa-blanca-south/torrevieja/torrevieja/

Spánarheimili kynnir - Torrevieja

1053 Spánn - Costa Blanca
58.500.000 kr.500 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð117 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 50 myndir

Upp ↑