1 af 31
Um eignina
Spánarheimili kynnir:
Vel hönnuð 115 fm. 3 svefnherbergja lúxusíbúð á jarðhæð í eftirsóttu fjölbýli á Las Colinas golfsvæðinu.
Íbúðin sem snýr í suður er byggð í halla sem gefur einstakt útsýni. 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, eldhúsið er bjart og fallegt, útgengi út á mjög stóra verönd sem snýr á tvo vegu. Bílastæði og geymsla fylgir í lokuðum bílakjallara. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður er fyrir íbúðir í þessu fjölbýli. Glæsilegt og vandað innbú fylgir í verði eignar.
Um svæðið:
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Glæsilega eign á frábærum stað og til afhendingar strax !
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 612
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/161919/apartment/resale/spain/costa-blanca-south/las-colinas/las-colinas/
Spánarheimili kynnir - Las Colinas
1053 Spánn - Costa Blanca
81.900.000 kr.712 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð115 m²Herbergi5BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF0
Allar 31 myndir
Upp ↑





























