fasteignasölur.is
Bústjórabyggð 5
1 af 39

Um eignina

BÚSTJÓRABYGGÐ 5 -  120 FM  NÝLEGT SUMAR / HEILSÁRSHÚS Á FLOTTUM STAÐ STUTT FRÁ KERINU Í GRÍMSNESI.  EIGNARLÓÐ.  ALLUR HÚSBÚNAÐUR OG TÆKJI FYLGJA.

Upplýsingar veitir  Ingólfur Gissurarson lg.fs. S:896-5222  ingolfur@valholl.is     

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Fallegt,  rúmgott og nýlegt (2019)  119,8 fm heilsárshús með um 45 fm verönd  á 0,7 hektara eignarlóð í landi Miðengis skammt frá Kerinu í Grímsnesi.  2 stór svefnherbergi, góðar stofur, gott svefnloft,  fallegt útsýni á Búrfell og víða.  Varmadæla, steypt gólfplata með gólfhita,  hitaveita er komin að lóðarmörkum.  Húsið hefur verið í rekstri í skammtímaleigu og er með rekstrarleyfi fyrir því.  Mjög góðar tekjur og flott umsögn á bókunarsíðum.  Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu, golfvelli, sundlaugar, veitingastaði og fl.   því einkar hentugt í ferðamannaleigu, eða bara til einkanota. 


SKIPULAG: 
Bústaðurinn er timburbústaður á steyptri plötu,  Álþak, gluggar úr harðvið tvöfalt gler.  Um 45fm pallur úr lerki.  Stórt og rúmgott bílastæði fyrir allt að sex bíla.  Góð grasflöt og falllegt útsýni.  Rafdrifnar lokanir að utan eru á flestum gluggunum.  Myndavélakerfi fylgir með og allur húsbúnaður, húsgögn og tæki.  
Húsið skiptist í forstofu, tvær stofur, opið eldhús með öllum tækjum m.a. ísskáp m.frysti, uppþvottavél, bakaraofn, örbyglgjuofn, kaffivél, ristavél og fl.  Tvö stór svefnherbergi bæði með tvíbreiðum rúmum og skápum.  Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, hvítri innréttingu, handklæðaofni, glugga, vegghengdu salerni og sérlögn fyrir þvottavél (þvottavél fylgir).  Svefnloft ofaná borðstofu með tveimur stökum rúmum.                                        

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222   ingolfur@valholl.is    
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 36 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222. 

VALHÖLL FASTEIGNASALA  SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM  OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR. 

Bústjórabyggð 5

805 Selfoss (dreifbýli)
79.800.000 kr.666 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundSumarhúsStærð119,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23527462Fasteignamat76.550.000 kr.Brunabótamat65.450.000 kr.
Skráð hjá
Valhöll
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑