fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Torrevieja
1 af 24

Um eignina

Glæsileg nýleg jarðhæð byggð 2022, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, stór verönd og útsýni yfir sameiginlega sérstaklega fallega og nútímalega sundlaug og garð. Eignin er tilbúin til innflutnings og öll húsgögn og heimilstæki fylgja. Geymsla og bílastæði í bílskýli. Nánar um svæðið: Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana. --- Eignarnúmer: 2022 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/163251/beautiful-recent-ground-floor-in-torrevieja/

Spánarheimili kynnir - Torrevieja

1053 Spánn - Costa Blanca
37.400.000 kr.534 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
TegundFjölbýlishúsStærð70 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 24 myndir

Upp ↑