1 af 7
Um eignina
Lúxus einbýlishús, "Oasis Sea" í byggingu í kringum golfvöllinn á La Finca sem er hverfi sem er þekktur fyrir stórkostlegan 18 holu golfvöll, 5 stjörnu SPA hótel og flotta veitingastaði.
Í boði eru 12 einbýlishús sem eru 103 fm að stærð á einni hæð með 87 fm þak sólarverönd. Garðurinn er frá 230 fm upp í 390 fm að stærð.
Hvert hús er með 3 svefnherbergjum ásamt 2 baðherbergjum, hjónaherbergið er með einkabaðherbergi og er aðgengi út í garð frá öllum herbergjum. Húsin eru afskaplega vönduð og björt og bjóða upp á þessa einstöku miðjarahafs stemningu.
Verð frá 445,00€ - 475.000€..
Húsin eru afhent frá Janúar 2025 til Júlí 2025.
Um svæðið.
Á La Finca svæðinu eru 2 kjarnar þar sem að þú finnur verslanir, hraðbanka, úrval af kaffihúsum og veitingastöðum og aðra þjónustu. Stutt er í flesta þjónustu, hvort sem það er gangandi eða akandi yfir í næsta bæ, Algorfa.
La Finca svæðið er þekkt fyrir glæsilegan 18 holu golfvöll, eitt glæsilegasta klúbbhús Costa Blanca og frábæra aðstöðu fyrir hverskonar útivist. Á svæðinu er 5 stjörnu hótel, spa og heilsulind.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2308
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/164002/luxury-villa-at-la-finca-golf-resort/
Spánarheimili kynnir - La Finca
1053 Spánn - Costa Blanca
65.200.000 kr.633 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð103 m²Herbergi5BílskúrJáFasteignanúmerF0
Allar 7 myndir
Upp ↑





