fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Quesada/Benijofar
1 af 34

Um eignina

Glæsilegur íbúðarkjarni, MOMA II í bænum Benijófar. Um einungis 30 íbúðir er að ræða í tveimur 3 hæða kjörnum sbr. íbúðir á jarðhæð, 2. hæð og þakíbúðir. Í kjarnanum er hægt að fá sér bílastæði og geymslu í bílakjallara gegn aukgjaldi en fallegt sameiginlegt svæði með glæsilegri sundlaug er staðsett fyrir miðju kjarnans. Hver íbúð er með 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt eldhúsi, borðstofu og setustofu með aðgengi út á svalir með útsýni yfir sameiginlega garðin og fallega nátturu. Þakíbúðirnar eru með auka baðherbergi og 70-103 m2 þaksvölum og að auki er ein þakíbúð með 2,5 x 2,5 m busl laug. Hægt er að bæta við útieldhúsi. Öllum íbúðum fylgja tæki í eldhúsi. Stærð frá 56,50m2 - 94,20m2 Verð frá 288.000€ til 460.000€ (penthouse íbúðir) Fyrstu eignirnar tilbúnar til afhendingar í desember 2025 Um svæðið. Benijofar er lítill og fallegur bær staðsettur á suður Costa Blanca svæðinu. Næstu bæjir eru Rojales, Ciudad Quesada og strandbærinn Guardemar De Segura en þessir bæjir eru innan við 5-10 mínutur frá í akstri. Stutt er til Torrevieja og Guardamar del Segura. Í Benijofar er fallegur miðbær þar sem öll þjónusta er við hendina eins og veitingastaðir, matvöruverslanir, almennar verslanir og svo framvegis. Og ekki má gleyma McDonald´s. Margir Íslendingar hafa með okkar aðstoð fundið draumaeignina í Benijofar. Vatnsskemmtigarðurinn Aquapark í Rojales er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Benijofar og La Marquesa golfvöllurinn er í ca. 7 mínutna akstursfjarlægð. Til gamans má geta þess að nafnið Benijofar er sótt í Arabísku og merkir "Son of the pearl". Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2212 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/164072/luxury-residential-complex-in-benijofar/

Spánarheimili kynnir - Quesada/Benijofar

1053 Spánn - Costa Blanca
42.200.000 kr.578 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð73 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 34 myndir

Upp ↑