fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Los Alcazares
1 af 32

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsilegur kjarni íbúða / einbýlishúsa við La Serena golfvöllinn. Um er að ræða fyrsta áfanga en í honum eru í boði 34 íbúðir í 3. hæða íbúðarkjarna. Í boði eru bæði 2 og 3 svefnherbergja íbúðir. Jarðhæðir eru með einkagarði og sumar með möguleika á einkasundlaug. 1. hæðin með góðum svölum og efstu hæðir með einkaþaksvölum. Fyrsti fasinn verður svo til afhendingar í janúar 2027. Golfvallar útsýni frá öllum íbúðum. Flott sameiginlegt svæði tilheyrir kjarnanum en þar má finna sundlaug, sólbaðsaðstöðu og opið svæði til hreyfingar. Hverri íbúð fylgir einkabílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara. Verð frá 255.000€ til 420.000€. Um svæðið: Los Alcázares sem er bær 20 mínútum frá La Zenia svæðinu eða lengra suður í átt að Cartagena borg. Los Alcázares er notalegur og flottur spænskur bær sem býður upp á ýmis konar þjónustu, flotta veitingastaði og góðar strendur. Roda Golf er glæsilegur gólfvöllur sem er staðsettur við hliðina á þessum flotta kjarna. Espacio mediterraneo er stór verslunarmiðstöð 20 mínútum frá Los Alcázares eða rétt fyrir utan Cartagena, þar sem allt er að finna frá veitingastöðum, fatabúðum, matvörubúðum, húsgagnaverslunum o.s.frv. --- Eignarnúmer: 2297 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/164954/new-luxury-apartments-next-to-la-serena-golf-course-in-los-alcazares/

Spánarheimili kynnir - Los Alcazares

1053 Spánn - Costa Blanca
38.100.000 kr.459 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð83 m²Herbergi5BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 32 myndir

Upp ↑