1 af 25
Um eignina
Lúxus penthouse íbúð á Las Colinas golfvallarsvæðinu.
Íbúðin sem snýr í suður og byggð í halla er svo sannanlega lúxuseign. Einstakt útsýni, stórglæsilegar þaksvalir og einstök samsetning innréttinga og húsgagna gerir þessa eign að draumaeign fyrir vandláta.
Eignin er 2 svefnherbergja og 2 baðherbergja (var upphaflega 3 svefnherbergja-hægt að breyta tilbaka), sérhannað eldhúsið er bjart og fallegt með öllum þægindum og tengist borðstofu / stofu og að auki er útgengi á stórar svalir og af svölum er stigi upp á einka þaksvalirnar ne þar er uppsett pergóla. Innan eignar er þvottahús og búr.
Bílastæði og geymsla fylgir í lokuðum bílakjallara. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður sem er aflokaður.
Glæsilegt og vandað innbú fylgir í verði eignar.
Um svæðið:
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Glæsilega eign á frábærum stað og til afhendingar strax !
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2026
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/165004/beautiful-penthouse-apartment-at-las-colinas-golf-country-club/
Spánarheimili kynnir - Las Colinas
1053 Spánn - Costa Blanca
130.400.000 kr.995 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð131 m²Herbergi4BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF0
Allar 25 myndir
Upp ↑























