fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia
1 af 14

Um eignina

Lítill kjarni íbúða í byggingu á vinsæla Santa Rosalia svæðinu. Um er að ræða 2. og 3. svefnherbergja íbúðir með 2. baðherbergjum. Það verða jarðhæðir með stórum einkagörðum, fyrstu hæðir með svölum og penthouse íbúðir með þaksvölum. Eignirnar verða  á frábærum stað miðsvæðis, með útsýni yfir sameiginlegu sundlaugina og garðinn. Verð frá 329.000 til 521.000 evrur. Stærð frá 89 m2 upp í 109 m2   Um svæðið: Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér. Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s.  körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu. Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2206 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/165708/el-lago-a-new-residential-complex-in-santa-rosalia/

Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia

1053 Spánn - Costa Blanca
48.200.000 kr.574 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð84 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 14 myndir

Upp ↑