fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - San Miguel
1 af 13

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Fallegt einbýlishús í nútíma stíl byggt árið 2021, húsið er á tveimur hæðum 127 m2 með 3 svefnherbergjum, eitt þeirra á jarðhæð og 3 baðherbergi, stór stofa, opið eldhús, 2 verandir og 40 m2 þaksvalir og  einkasundlaug. Eignin er seld fullbúin með heimilistækjum,húsgögnum og loftkælingu. Tilbúið til innflutnings. Nánar um svæðið: Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ. --- Eignarnúmer: 1259 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/165886//resale/spain/costa-blanca-south/san-miguel/san-miguel/

Spánarheimili kynnir - San Miguel

1053 Spánn - Costa Blanca
57.900.000 kr.456 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð127 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 13 myndir

Upp ↑