1 af 5
Um eignina
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Fannborgartangi 14, 845 Flúðum.Um er að ræða 164,5 fm. parhús þar af er bílskúr 38,3 fm. að stærð. Húsið er timburhús á steyptum sökkli og plötu. Klætt að utan með liggjandi báruáli í bland við standandi klæðningu. Innra skipulag hússins er þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, anddyri, gangur, þvottahús, stofa og eldhús. Búið er að einangra húsið að innan, ganga frá rakasperru ásamt rafmagnsgrind.
Eignin er staðsett í nýju og spennandi hverfi á Flúðum en stutt er í golfvöll og göngu fjarlægð er frá allri helstu þjónustu á Flúðum og í námunda við einstaka náttúru suðurlandsins.
Verðið miðast við að eignin afhendist rétt rúmlega fokheld en mögulegt er að fá hana lengra komna.
Nánari lýsing:
Lóð: Lóðin skilast grófjöfnuð og er búið að skipta um jarðveg í bílaplani.
Útveggir: Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir 9mm krossviðsplötum að utan til stífingar. Loftunargrind er 28mm x 60mm.
Bílsskúr: Afhendist á því stigi að búið er að klæða tvöfalt gips á brunavegg bílskúrsmegin og einföldu lagi íbúðarmegin. Loft og útveggir með tvöföldu gipslagi og hefðbundnum rafmagnsgrindar- og rakasperrufrágangi. Ath ómálað. Gert er ráð fyrir að allt rafmagn í bílskúr sé utanáliggjandi.
Brunaveggur: Milli íbúða er tilbúinn.
Þak: Þak er niðurtekið kraftsperruþak með 14° þakhalla. Ofan á sperrur kemur borðaklæðning , þakpappi og bárujárn.
Þakkantar: Vindskeiðar eru úr lituðu áli og álrennur innfeldar.
Hurðir og gluggar: Útihurðir og gluggar eru ál-tré .
Opinber gjöld: Inntaksgjöld rafmagns,kalda vatns og hitaveitu eru greidd.
Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir).
ATH myndir hafa verið unnar með hjálp gervigreindar.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is
Fannborgartangi 14
846 Flúðir
62.000.000 kr.377 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundRað-/parhúsStærð164,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF25331802Fasteignamat58.350.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 5 myndir
Upp ↑



