fasteignasölur.is
Mýrargata 37 (601)
1 af 64

Um eignina

Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna:

Frábær 3ja herbergja þakíbúð með tvennum þaksvölum, bílskúr með stæði í bílakjallara.

**Íbúðin er laus við kaupsamning**


Fyrir allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Falleg, afar björt og vel skipulögð 3ja herbergja þakíbúð með aukinni lofthæð í vönduðu og viðhaldsléttu húsi við Mýrargötu 37 á Héðinsreit, á jaðri Vesturbæjar í 101 Reykjavík. Húsið er hannað af Arkþing/Nordic og innanhúshönnun íbúðar er frá Sæju.


Gengið er inn í forstofu með miklu skápaplássi og til vinstri er sér þvottahús. Á móti taka við fyrri þaksvalir sem snúa til vesturs með fallegu útsýni.  

Eldhús og stofa sameinast í opnu alrými þar sem með gólfsíðir gluggar njóta sín í suður. Vandaðar Axis innréttingar, quartz borðplötur frá Granítsmíðjunni og Siemens eldhústækjum. Útgengt er á skjólsælar suðursvalir með útsýni.


Í Hjónasvítunni er mikið skápapláss, einnig er sér snyrting og sér sturta. Seinna svefnherbergið er með fataskáp og stórum þakglöggum. Gólfhiti er í allri íbúðinni með Danfoss stýrikerfi og parket á gólfum, nema á votrýmum sem eru flísalögð.


Hér er um að ræða frábæra eign á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur.


Birt stærð eignar er 161,7 m², Íbúð 103,1m2, bílskúr í bílakjallara 31,2 m2 og sérgeymsla 27,4 m2. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði merkt B-01 í bílakjallara.

**Íbúðin er laus við kaupsamning**


Fyrir allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Mýrargata 37 (601)

101 Reykjavík
149.900.000 kr.1.244 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð120,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2521827Fasteignamat108.300.000 kr.Brunabótamat84.340.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑