1 af 23
Um eignina
Spánarheimili kynnir:
Lúxus íbúðakjarna örstutt frá ströndinni í Torrevieja. Kjarni sem er á 4. hæðum er með einungis 8 íbúðum, þar af tvær penthouse íbúðir með einka þaksvölum, einkasundlaug, útisturtu og grillsvæði.
Það eru aðeins 5 eignir eftir í þessu fjölbýli og báðar þakíbúðirnar eru seldar
Allar íbúðir eru 3. svefnherbergja og 2-4. baðherbergja og frá 134 m2 til 239 m2. Eldhús er afhent fullbúið með BOSCH tækjum og eru ljós að auki innifalin í verði ásamt Mitsubishi aircon (heitt og kalt). Gólfhiti er á öllum baðherbergjum.
Glæsilegt sameiginlegt sundlaugasvæði og svæði til útivistar. Bílakjallari er svo undir byggingunni og hægt er að bæta við stæði / bílskúr (25.000 evrur aukalega).
Verð frá 335.000 til 395.000 evrur.Þetta er frábær fjárfestingakostur enda ekki algengt að nýjar lúxuseignir séu byggðar í hjarta borgarinar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
---
Eignarnúmer: 2123
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/166023/luxury-residential-complex-within-walking-distance-of-the-beach-in-torrevieja/
Spánarheimili kynnir - Torrevieja
1053 Spánn - Costa Blanca
49.100.000 kr.372 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð132 m²Herbergi5BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF0
Allar 23 myndir
Upp ↑





















