1 af 50
Um eignina
Sérlega flott einbýli í nýjum kjarna á Vistabella Golf svæðinu. Um er að ræða flottar villur á tveimur hæðum með valkosti um að bæta við 46 m2 þaksvölum. Eignirnar eru 118 m2 með einkasundlaug og útisturtu á veröndinni ásamt innkeyrslu og bílastæði á lóðinni.
Eignirnar samanstanda af 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt eldhúsi sem er opið til borðstofu og stofu þar sem aðgengi er út á veröndina með sundlauginni. Hægt er að bæta við þaksvölum gegn auka gjaldi.
Húsunum fylgja öll tæki í eldhús, hiti í baðherbergisgólfum og 3 sólarpanelar fyrir td. vatnshitun.
Húsin eru til afhendingar frá apríl 2025 til september 2026.
Verð frá 379.000€ til 459.000€.
Um svæðið.
Vistabella golfsvæðið er öryggisvaktað 24/7 og er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Einstakt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana. Svæðið er sérlega vinsælt enda margt og mikið fyrir flesta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
---
Eignarnúmer: 2220
Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/166566/new-villas-in-vistabella-golf/
Spánarheimili kynnir - Vistabella
1053 Spánn - Costa Blanca
60.800.000 kr.441 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð138 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Allar 50 myndir
Upp ↑
















































