fasteignasölur.is
Urðarhvarf 10
1 af 10

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til leigu 770 m² skrifstofuhæðir í glæsilegri nýbyggingu við Urðarhvarf 10 í Kópavogi.
Um er að ræða fjórar skrifstofuhæðir á 2. til 5. hæð byggingar sem hægt væri að leigja saman eftir þörfum. 

Hæðirnar verða hannaðar með nútímalegu vinnuumhverfi í huga og gert er ráð fyrir blöndu af opnu vinnurými, lokuðum skrifstofum og fundarherbergjum, ásamt rúmgóðri kaffistofu. Væntanlegur leigjandi getur komið að hönnun hæðar. 

Hæðirnar verða bjartar með stórum gluggum á öllum hliðum og aðgengi að svölum af hverri hæð.
Gott aðgengi er að öllum hæðum með tveimur lyftum og stigahúsi. 
Gert er ráð fyrir fjórum salernum á hæðinni, þar af eitt með aðgengi fyrir hjólastóla.

Lóðin nýtur gífurlegs útsýnis til norðurs í átt að Esjunni, yfir Elliðarárdalinn og í átt að Búrfelli.
Gert er ráð fyrir um 104 bílastæðum á lóðinni. Að auki verður tvöfaldur bílakjallari með 46 bílastæðum, aðgengilegur frá austurhlið byggingarinnar.
Flott aðstaða fyrir starfsmenn verður í sameign hússins, þar á meðal hjólageymsla, hobbýherbergi með golfhermi, líkamsrækt o.fl.
Áætlað er að húsið verði tilbúið til afhendingar í ársbyrjun 2028.   

Hafðu samband við Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is eða Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala og leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Urðarhvarf 10

203 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð770 m²LyftaFasteignanúmerF58923813
Skráð hjá
Jöfur atvinnuhúsnæði
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑