fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia
1 af 29

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsileg villa á nýja og spennandi svæðinu Santa Rosalía í Murcia. Þetta er hornvilla sem snýr í suðurátt og er með 60m² garði þar sem þú getur slakað af í sólinni. Á jarðhæðinni finnum við flotta stofu og eldhús í opnu rými sem er nútímalegum stíl, eldhúsið kemur með öllu raftækjum. Eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi er að finna á jarðhæðinni. Á annarri hæð er en-suite svefnherbergi með einkabaðherbergi og aðgengi út á flotta verönd þar sem þú hefur útsýni yfir lónið Einnig er þessi eign með ótrúlegum kjallara með náttúrulegri loftræstingu þar sem við finnum svefnherbergi með baðherbergi, geymslu og stóra stofu. LAUS STRAX - ATHUGIÐ AÐ BIÐ EFTIR SAMBÆRILEGRI EIGN Á SANTA ROSALÍA ER ALLT AÐ 24 MÁNUÐIR! Verð 495.000€ Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is Um svæðið: Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér. Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s.  körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu. --- Eignarnúmer: 1170 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/167844/detached-house/resale/spain/costa-calida-murcia/santa-rosalia/santa-rosalia/

Spánarheimili kynnir - Santa Rosalia

1053 Spánn - Costa Blanca
73.100.000 kr.406 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð180 m²Herbergi6BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 29 myndir

Upp ↑