fasteignasölur.is
Sunnusmári 5
1 af 17

Um eignina

Nýtt á skrá!! Sunnusmári 5 - Glæsileg 3ja herb. íbúð á fimmtu hæð (efstu) með aukinni lofthæð.

Nýtt á skrá! *** Möguleiki á 25% aðstoð fyrir fyrstu kaupendur með ÞG Sjóð og 20% fyrir aðra en fyrstu kaupendur ***
 
ÞG Sjóður hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn með því að fjárfesta fyrir allt að 25% af kaupverði eignar. Þú þarft einungis að eiga 10% í eigið fé til þess að geta keypt þér eign og að fá 65-70% lán hjá lánastofnun.

Nánari upplýsingar um ÞG Sjóð: www.tgsjodur.is

LIND Fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 109,7 fermetra 3ja herbergja íbúð á efstu hæð við Sunnusmára 5 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í 89,9 fermetra íbúðarrými og stór 19,8 fermetra geymslu í kjallara. Virkilega gott skipulag þar sem fermetrar nýtast vel. Sérstæði í bílakjallara fylgir íbúð þar sem búið er að leggja grunn fyrir rafhleðslukerfi.

Íbúðin er með nýlegu harðparketi á gólfum og nýlegum gardínum í gluggum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir til suðurs inn í skjólgóðan garð milli Sunnusmára 1-13. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.


Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs sem verður fullfrágenginn.

Íbúð 504: Er glæsileg 3 herbergja íbúð á efstu hæð með aukinni lofthæð. Heildarstærð er 109,7 fermetrar og er staðsett á fimmtu hæð hússins. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 19,8 fermetra geymsla. 6,7 fermetra svalir til suðurs. Afhending er við kaupsamning.

Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými sem er staðsett við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. 

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. 

ÞG Verk er verktaki hússins og hafa þeir um 30 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar er á baðherbergi. 

Eldhústæki: Íbúðinni fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Íbúðin er með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta er með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Damixa. Sér þvottahús er innan íbúðar.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
91.900.000 kr.838 þ./m²
+3,3% á 1 ári
17. febrúar 2026Fyrsta sala
89.000.000 kr.811 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sunnusmári 5

201 Kópavogur
91.900.000 kr.838 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð109,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF252254549Fasteignamat87.450.000 kr.Brunabótamat67.250.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑