fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Finestrat
1 af 10

Um eignina

Þessi nútímalegu stórglæsilegu lúxus einbýlishús eru í byggingu í íbúðahverfinu „Balcon de Finestrat“, sem er aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá ströndum La Cala og Playa Poniente og verslunarmiðstöðinni „La Marina“ mitt á milli tveggja golfvalla. Húsin eru staðsett upp á hæð með stórbrotnu sjávarútsýni.  Húsin eru á þremur hæðum á jarðhæð er sameinuð stofa og borðstofa með opnu eldhúsi, hjónaherbergi með en-suite baðherbergi, fataskápsherbergi og setustofu, gestasalerni og aðgengi að sólarverönd með fallegri infinity sundlaug . Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi til viðbótar með sér baðherbergi og tvö með sérsvölum. Kjallari með stæði fyrir fimm bíla, eða mögulega líkamsræktarstöð, heilsulind, bíóherbergi og eða leikherbergi. Villan er búin gólfhita, loftkælingu og það er foruppsetning fyrir sundlaugarhitun og lyftu.  Nánar um svæðið: Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Finestrat tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum. --- Eignarnúmer: 1186 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/168073/gorgeous-luxury-villa-in-balcon-de-finestrat/

Spánarheimili kynnir - Finestrat

1053 Spánn - Costa Blanca
322.300.000 kr.583 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 5 bað
TegundEinbýlishúsStærð553 m²Herbergi9FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 10 myndir

Upp ↑