fasteignasölur.is
Engjaland 4 íb. 204
1 af 17

Um eignina

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Einstakt tækifæri til að eignast íbúð í þessu glæsilega húsi á nýju hagstæðu verði.

Engjaland 4 íb 204, Selfossi.


Lögmenn Suðurlandi fasteignasala kynna 14 nýjar og glæsilegar íbúðir fyrir 55 ára og eldri. 

Almennt um húsið: 

Húsið er staðsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum með 14 íbúðum. Um er að ræða fjölbýlishús fyrir 55 ára og eldri. Á bílaplani fyrir utan bygginguna eru 19 bílastæði þar af tvö sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
Enda íbúðir og íbúðir á efstu hæð fylgir sérmerkt stæði í bílakjallara byggingarinnar en öðrum íbúðum fylgir upphitað sérmerkt bílastæði fyrir utan bygginguna. Allar íbúðir eru með einkageymslu í kjallara byggingarinnar. Öllum íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum á öllum rýmum, innréttingum og tækjum. Húsið er byggt með nútímaþarfir að leiðarljósi. Húsið er álklætt með klæðningu frá Áltak. Allir gluggar og svalahurðir í húsinu eru frá Byko. Gluggarnir eru úr ál/tré. Svalir í húsinu eru staðsteyptar. Svalir á 1. - 3. hæð eru með svalalokanir sem ná fullri lengd og svalir á 4. hæð eru með gler að hluta á handriði. Gert er ráð fyrir tengingu fyrir heitum potti í íbúðum á 4. hæð en skilast ekki með uppsettum potti. Svalalokanir á 1.-3 hæð er frá fyrirtækinu Gluggar og Garðhús.

Íbúðin:
Innra skipulag:
  • Forstofa: Fataskápur en vínylparket er á gólfi. 
  • Hjónaherbergi: Fataskápur en vínylparket er á gólfi. 
  • Herbergi: Vínylparket er á gólfi. 
  • Eldhús: Innrétting frá HTH. Lýsing er undir skápum. Borðplata er úr stein frá S. Helgasyni.  Íbúðirnar skilast með vönduðum tækjum af gerðinni AEG frá Ormsson. Íbúðum er skilað með fjölvirkum 71L blástursofni, span helluborði með sniðbrún á köntum, útdraganlegri viftu sem er innfelld í efri skáp eða vírhengdum svörtum eyjuháfi þar sem við á, blöndunartækjum, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp með kæli og frysti.
  • Stofa: Vínylparket er á gólfi en útgengt er á yfirbyggðar verönd um rennihurð.
  • Baðherbergi: Innrétting frá HTH.  Borðplata er úr stein frá S. Helgasyni. Blöndunartæki koma frá Byko. Innfelld blöndunar- og sturtutæki hússins er hitastýrt með sturtustöng og handsturtu. Þau eru af gerðinni Grohtherm frá framleiðandanum Grohe. Vaskur er undirlímdur. Veggir eru að mestu leyti flísalagðir. Spegill er uppsettur á baðherbergjum.
  • Þvottahús: Flísalagt og þar er innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara. 

Annað:
  • Mynddyrasími í öllum íbúðum
  • Lóð skilast fullfrágengin malbikuð og þökulögð.
  • Loftræsting er sérstæð í hverri íbúð, með lítilli loftræstisamstæðu með bæði útsog og innsog.

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Engjaland 4 íb. 204

800 Selfoss
89.800.000 kr.753 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð119,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25272126Fasteignamat69.150.000 kr.Brunabótamat79.190.000 kr.
Skráð hjá
Lögmenn Suðurlandi
HeimilisfangAusturvegi 3, 800 SelfossSími480-2900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑