fasteignasölur.is
Hagamelur 32
1 af 21

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir eignina Hagamel 32, 107 Reykjavík.   Falleg og björt íbúð á 3 hæð á afar eftirsóttum stað í Vesturbænum. Tvennar svalir. 
Eignin er 119,2 fm (þar af geymsla í kjallara 5,8 fm).  Eignin skiptist í 2 stofur (eldhús og borðstofa í annarri), sjónvarpshol, 4 svefnherbergi og baðherbergi.
 

Lýsing eignar:
Stigapallur fyrir framan inngang.  Skápur fyrir föt og aðstaða fyrir skó. 
Herbergi 1.  Af stigapalli er gengið ínn í rúmgott herbergi sem er utan íbúðar.   
Hol.  Af stigapalli er gengið inn í parketlagt hol sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Setustofa: Rúmgóð og björt setustofa er opin við borðstofu, parket á gólfi. 
Borðstofa/ eldhús .  Mjög rúmgott og bjart rými sem rúmar eldhús og borðstofu. Eldhúsið er með hvítri innréttingu með góðu skápa og vinnuplássi.  Útgengi út á svalir.  
Herbergi 2: Rúmgott herbergi, parket á gólfi. Hér var áður eldhús. 
Herbergi 3: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, sérsmíðaðir upprunalegir fataskápar.
Herbergi 4: Barnahergi.  Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi. Upprunalegt baðherbergi.  

Íbúðinni fylgir sérgeymsla (5,8 fm) í kjallara hússins.
Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara hússins.

Framkvæmdir síðustu ára eru eftirfarandi:
- Raflagnir í sameign endurnýjaðar 2018
- Raflagnir í íbúð endurnýjaðar 2011
- Skipt um svalahandrið 20-21
- Steypuviðgerð á tröppum 20-21
- Gluggar málaðir 2017-2018
- Lagnir fóðrar 2012-2013

Falleg íbúð á mjög eftirsóttum stað í Vesturbænum - stutt í skóla, leikskóla, Háskóla Íslands sem og alla helstu verslun og þjónustu.
Kaffi Vest, Melabúðin og Sundlaug Vesturbæjar í allra næsta nágrenni - íþróttasvæði KR í næsta nágrenni. Örstutt (200-250 m) á næstu strætóstöðvar við Hofsvallagötu og Melaskóla.

Nánari upplýsingar veita
Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali, í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.
Úlfar Þór Davíðsson Lögg. fasteignasali í síma 7889030, tölvupóstur  ulfar@fastborg.is

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
114.900.000 kr.964 þ./m²
+317,8% á 16 árum
17. nóvember 2010Fyrsta sala
27.500.000 kr.231 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hagamelur 32

107 Reykjavík
114.900.000 kr.964 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1960TegundFjölbýlishúsStærð119,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20272191Fasteignamat96.750.000 kr.Brunabótamat59.300.000 kr.
Skráð hjá
Borg Fasteignasala
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑