fasteignasölur.is
Ægisgata 2 - 2. og 3ja  hæð
1 af 61

Um eignina

VERÐ: TILBOÐ
Frábært fjárfestingatækifæri fyrir byggingafyrirtæki og/eða fjárfesta. Möguleiki að yfirtaka leigusamninga. Stórkostlegt útsýni til 3ja átta.
Heimaey fasteignasala kynnir 2 eignir í Fiskiðjuhúsinu að Ægisgötu 2 Vm.. Um er að ræða 2. og 3ju hæð. Hvor hæð um sig er 1.083 m2 að stærð og því er heildarstærð 2.166 m2.  Eignirnar seljalst í einu lagi.

Eignirnar bjóða upp á möguleika á íbúðum með sjávarsýn ofl. og svo skrifstofa og/eða aðra atvinnustarfsemi. Eignin er byggð árið 1951 en var endurbyggt að mestu á árunum 2016 til 2020.  Að utan er allt húsið nýlega endurnýjað, einangrað að utan og múrað með steiningu. Gluggar er nýir.
Aðalinngangur beggja hæða er að vestanverður, lyfta og stigar. Einnig er inngagngur að austanverðu.  
Eignirnar eru byggðar úr steini árið 1951
Um er að ræða eignirnar Ægisgata 2, 2. og 3ja hæð. Eign 2. hæðar er í leigu sem er 1.083 m2. Eign 3ju hæðar er 1.083 m2 og einungis 83 m2 eru í leigu ásamt sameignilegu rými  47,4 m2 samtals 130,4 m2, en þar eru hluti af skrifstofum Þekkingaseturs.
Eignin telur:
2. hæð (Fnr. 227-1969) þar eru rúmlega 20 skrifstofurými, flest mjög stór, 2 fundarherbergi, stór fundarsalur, 8 snyrtingar, gott fullbúið eldhús, rannsóknarstofur, 7 snyrtingar og ræstikompa. Þekkingasetur Vesmtannaeyja er leigutaki, en hefur framleigt rými að hluta.
3. hæð (FNR: 236-0000):
Á 3ju hæð er í leigu til Þekkingaseturs 130 m2 rými.  Einnig er FabLab með um 350 til 400  m2 rými í notkun.  Eftir stendur rúmlega 500 m2 hrátt rými, en í heild 1.083 m2 rými, sem gæti nýst sem annars vegar leigurými og hins vegar íbúðarrými með góðu útsýni til 3ja átta.
Spennendi fjárfestingakostur sem býður upp á mikla möguleika
Nánari upplýsingar veitir:
Guðjón Hjörleifsson, löggiltur fasteignasali s. 895-2548 eða hafið samband :  gh@heimaey.net

 

Ægisgata 2 - 2. og 3ja hæð

900 Vestmannaeyjar
Tilboð
Fjölbýlishús
Byggingarár1951TegundFjölbýlishúsStærð2166 m²InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2271969Fasteignamat242.000.000 kr.Brunabótamat1.153.850.000 kr.
Skráð hjá
Heimaey þjónustuver
HeimilisfangBárustígur 1, 900 VestmannaeyjarSími481-1114

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 61 myndir

Upp ↑