fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Las Colinas
1 af 38

Um eignina

Spánarheimili kynnir:   Vel hönnuð nýleg 2 svefnherbergja íbúð á Las Colinas golfsvæðinu. Íbúðin afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum, húsbúnaði og raftækjum. Íbúðin er á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi og er rúmgóð enda sérstaklega vel hönnuð. Tvö góð svefnherbergi með skápum. En-suit baðherbergi er innan við annað svefnherbergið. Eldhús og stofa er eitt stórt rými með útgengi út á stórar suður svalir. Aircon (heitt / kalt) er í allri íbúðinni, rafmagnshlerar fyrir gluggum og rafmagnsstýrðar gardínur að auki. Bosch eldunartæki. Stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir ásamt læstri geymslu við hlið bílastæðis. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu og auknu aðgengi, sbr. með lyftu. Um svæðið: Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. Glæsileg eign á frábærum stað og til afhendingar strax ! Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 818D Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/165260/apartment/resale/spain/costa-blanca-south/las-colinas/las-colinas/

Spánarheimili kynnir - Las Colinas

1053 Spánn - Costa Blanca
47.600.000 kr.626 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð76 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 38 myndir

Upp ↑