fasteignasölur.is
Strönd, Skaftárhreppur
1 af 46

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Jörðina Strönd, landnr. 163428.  Jörðin er staðsett í Meðallandi í Skaftárhreppi og 355 ha að stærð. Jörðinni fylgir skv. Þjóðskrá Íslands hlunnindi sem eru æðarvarp og reki ásamt lax og silungsveiði með aðild að veiðifélagi Kúðafljóts. Jörðin er talin henta vel til akuryrkju. Á jörðinni Strönd er íbúðarhús, hlaða, fjós, bogaskemma og mjólkurhús. Húsakostur hefur allur verið endurnýjaður á vandaðan hátt. Kvöð er um aðkomu að eyðijörðunum Sandar og Sandasel um landið. 

Nánari lýsing:
Íbúðarhús:
Húsið er steinsteypt, 125 m² á tveimur hæðum byggt árið 1953, 4 svefnherbergi , baðherbergi og stofa. Húsið er einangrað að utan með steinull og klætt með bárujárni á veggjum og þaki, gluggar og hurðir eru úr plasti og er þrefalt gler í öllu. Að innan er húsið klætt með spónaplötum og er búið að endurnýja allar vatnslagir og frárennsli ásamt rotþróm sem og raflagnir. Baðherbergi með sturtu, klætt með baðplötum og er gólfhiti á flísalögðu gólfinu. Þvottahús og anddyri eru flísalögð með gólfhita. Restin af gólfefnum er korkur með viðaráferð sem er vatnsheldur og gríðarlega sterkur. Eldhúsið er fullbúið með eldavél, bakaraofni, ísskáp og uppþvottavél. Pallur er í kringum helming hússins.

Hlaða, fjós og mjólkurhús:
Um er að ræða steinsteypt hús samtals um 270 m² og eru veggir málaðir. Búið er að skipta um þak á öllum húsum og endurnýja alla glugga og hurðir.  Húsin eru að mestu upprunarleg að innan, hluti af gólfum eru steypt en önnur malar- eða sandborin.

Bogaskemma (Braggi):
Um er að ræða 134 m² skemmu þar sem búið er að skipta um hurðir og glugga ásamt því að mála skemmuna að utan en járnið er komið til ára sinna. Steypt plata er í helming skemmunar.

Lóðin í kringum húsin er afgirt og er hlið frá afleggjaranum. 

Veiðihlunnindi í Kúðafljóti fylgja jörðinni. Veiði er í lækjum sem renna ýmist í gegnum jörðina eða meðfram henni og eru þeir fiskar gengnir út í Kúðafljót. Jörðin hentar mjög vel til ræktunar og er hluti hennar framræstur en megnið er ósnortið land. Vestan megin í landinu eru gamlir aurar Kúðafljóts en þar eru malaraurar sem standast vottun fyrir steypu.  Mikið næði er á Strönd en bæir sem byggð er á eru fjarri. Þá er langur afleggjari að bænum og er þar af leiðandi afar friðsælt auk þess sem útsýnið er stórbrotið en það nær frá Háfelli við Vík í vestur og í austur eru það öræfin sem rammast inn og allt þar á milli.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Strönd, Skaftárhreppur

881 Kirkjubæjarklaustur
Tilboð
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð354587,3 m²FasteignanúmerF21903001Fasteignamat31.718.000 kr.Brunabótamat108.210.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Allar 46 myndir

Upp ↑