fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - La Nucia/Polop
1 af 16

Um eignina

Staðsett í fjallshlíð við rólega og gullfallega þorpið Polop og aðeins 15 mínútum frá ströndinni eru þessi átta parhús í byggingu. Nútímanlegur lúxus í fallegri náttúru. Hvert hús er vandlega hannað með það að markmiði að hámarka þægindi og lífsgæði. Húsin bjóða upp á þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi á tveimur hæðum þar sem hagsmunir og skipulag er í fyrirrúmi. Hönnun húsana einkennast af opnu rými þar sem náttúrulegt ljós fær að njóta sín og stóru gluggarnir eru eins og fallegir rammar utan um stórkostlegt útsýni yfir fjöllin. Eignirnar koma með stóru útisvæði, þar á meðal verönd og þaksvalir sem eru fullkomnar til að njóta miðjarðarhafsloftsins allt árið um kring. Eignirnar eru staðsettar á mjög fallegu svæði sem er umlukið náttúru en samt nálægt öllum nauðsynlegum þægindum. Íbúar geta notið nálægðar við ósnortnar strendur, virtustu skóla, heilsugæslustöðvar, verslunarsvæði og fjölbreytt úrval veitingastaða. Fyrir íþróttaáhugafólk býður nærliggjandi bær La Nucía, sem er viðurkennd sem íþróttahöfuðborg Costa Blanca, upp á heimsklassa aðstöðu þar sem mikið er um bæði innlenda og alþjóðlega viðburði. Einstakt tækifæri til að upplifa miðjarðarhafslífið í lúxus á einu eftirsóttasta svæði Spánar. --- Eignarnúmer: 4013 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/169986/newly-built-semi-attached-villa-in-beautiful-green-surroundings-in-polop/

Spánarheimili kynnir - La Nucia/Polop

1053 Spánn - Costa Blanca
60.400.000 kr.277 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundEinbýlishúsStærð218 m²Herbergi5FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 16 myndir

Upp ↑