fasteignasölur.is
Sæból 18
1 af 28

Um eignina

159,4 fm. einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 38 fm. bílskúr byggt árið 1987.

Neðri hæð skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestasnyrtingu, eldhús, stofu og þvottahús. Útihurð er á forstofu. Flísar eru á forstofu, gestasnyrtingu, eldhúsi og þvottahúsi en parket á herbergi og stofu. Góðar innréttingar eru er í eldhús, baðherbergi og þvottahúsi og skápar eru í forstofu og herbergi.  Út af stofu er góður sólpallur. Gólfhiti er í eldhúsi.

Úr holi er gengið upp á efri hæð sem skiptist í hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Parket er á holi og herbergjum en dúkflísar á baðherbergi. Góðar innréttingar eru á baðherbergi og skápar eru í öllum herbergjum.

Bílskúr er með sjálfvirkri hurð og er hitaður upp með blásara. Auðvelt væri að útbúa íbúð í bílskúr. 

Lóð er frágengin.  Bílastæði framan við húsið hellulagt og stór steypt stétt er milli húss og bílskúrs. Hitalögn frá úthurð að gönguhurð á bílskúr.

Flestir gluggar í húsinu hafa verið endurnýjaðir og útihurðir eru nýlegar. Þá er nýlegt járn á þaki.

Húsið ber með sér að hafa notið góðs viðhalds.

Húsið er skemmtilega staðsett niður við sjó og frá því er skemmtilegt  útsýni til kirkjufells og út á Breiðafjörð. 
 

Sæból 18

350 Grundarfjörður
87.000.000 kr.441 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1987TegundEinbýlishúsStærð197,4 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF2115287Fasteignamat49.350.000 kr.Brunabótamat89.600.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Snæfellsness
HeimilisfangAðalgata 3, 340 StykkishólmurSími438-1199

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑