fasteignasölur.is
Strandvegur  26 íbúð 0401
1 af 40

Um eignina

       Heimaey fasteignasala kynnir stórglæsilega endaíbúð á 4. (efstu)hæð að Strandvegi 26 Vm. merkt 0401. Eignin er í heild 116 m2 að stærð og þar af er stór 9 m2 sérgeymsla í kjallara. Einnig er 28,1 m2 bílastæði í bílageymslu  ásamt 9 m2 svölum til vesturs, svo og hlutdeild í sameign. . Frábært  útsýni af svölum til vesturs og austurs.  Allt handverk í eigninni er til fyrirmyndar
Seljandi hefur ekki búið í eigninni, heldur nýtt hana eingöngu þegar hann fer til Eyja og því er eignin eins og ný.
Um er að ræða glæsilegt eldhús, stóra stofu með útgang 9 m2 flísalagðar svalir, 2 stór herbergi með parket á gólfi, 2 snyrtingar , þvottahús, sérgeymsla í kjallara, bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð.
Innréttingum var breytt, ljós eru með ljósastýringu og sérsniðin gluggatjöld á allri íbúðinni og tvöfaldur ísskápur fylgja. Þvottavél og þurrkari geta lika fylgt og jafnvel  húsgögnin líka.
Eintstakt útsýni af vestursvölum og einnig austursvölum þar sem Eldfell og nýja hraunð sjást vel. Eignin er innsta íbúðin í stigaganginum og því er hægt að setja út borð og stóla og gleypa í sig morgunsólina með morgunkaffinu og nýju meðlæti frá Vigtinni sem er í 100 metra fjarlægð. Frábærir nágrannar á efstu hæðinni og svo mé ekki gleyma litlu Grá og Litla Hvít á 2.  hæð í næsta húsi,  þar sem er gluggasýn til þeirra að utan.
Vastursvalir eru líka mjög skjólgóðar bæði í vestan-  norðanáttinni þegar sólin skín.
Nóg af gestabílastæðum á bílaplani austan eignar.


Eignin telur (inngangur af austur svölum):
Anddyri/hol, parket á gólfi, góðir skápar
Eldhús, glæsileg eldhúsinnrétting, parket á gólfi
Stofa, stór og góð stofa með útgang út á vestursvalir með miklu útsýni
Herbergi 1, stórt og gott,parket á gólfi
Herbergi 2, stórt og gott, parket á gólfi
Snyrting, glæsileg innrétting með ljósaspegli, baðkar, veggskápur,  handklæðaofn, upphengt WC, flísar í hólf og gólf
Snyrting 2, við inngang, nett glæsileg innrétting með ljósaspegli, Walkin sturta upphengt WC, flísar í hólf og gólf
Þvottahús/geymsla, rúmgott þvottahús með flísum á gólfi
 
Geymsla, stór og góð sérgeymsla í kjallara
Bílastæði í bílakjallara, endabílastæði í bílakjallara . Búið að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð í bílastæðið.
Glæsileg eign á eftstu hæð að Strandvegi 26. Eign með frábæru útsýni af báðum svölum svo og öðrum gluggarýmum.  Sjón er sannarlega sögur ríkari.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón Hjörleifsson löggiltur fasteignasali
sími: 895-2548 eða sendið póet á  gh@heimaey.net

Strandvegur 26 íbúð 0401

900 Vestmannaeyjar
119.900.000 kr.1.034 þ./m²
Fjölbýlishús
Byggingarár1947TegundFjölbýlishúsStærð116 m²InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2513887Fasteignamat71.650.000 kr.Brunabótamat74.580.000 kr.
Skráð hjá
Heimaey þjónustuver
HeimilisfangBárustígur 1, 900 VestmannaeyjarSími481-1114

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑