fasteignasölur.is
Hjallavegur 14
1 af 2

Um eignina

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Hjallaveg 14, Reykjavík  íbúð 0001 fnr. 201-7722  - Fasteignamat 2026 er kr.49.700.000 - 

Húsið er byggt árið 1946 og er tvíbýlishús. Lóðin sem húsið stendur á er skráð 512,6 fm. Birt stærð íbúðarinnar er 55,2 fm. Sömu eigendur eiga íbúðina á efri hæðinni og er möguleiki að kaupa allt húsið. Vinna stendur yfir varðandi nýja eignaskiptayfirlýsingu fyrir eignina. Rými sem eru í núverandi eignaskiptasamningi sameiginleg myndu færast yfir á neðri hæðina. 


FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi. 

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Tveir gluggar eru í rýminu. 

Eldhús: Flísar á gólfi. Góð dökk innrétting. Ofn og helluborð. Vaskur í innréttingu. Tengi fyrir uppþvottavél. 

Svefnherbergi: Flísar á gólfi. 

Baðherbergi: Flísar á gólfi. Sturta og salerni og handlaug. Ekki er gluggi en vifta er í rýminu. 


Hjallavegur 14 er tvíbýlishús sem er í eigu sömu eigenda. Hægt væri að byggja hæð ofan á húsið og einnig eru stækkunarmöguleikar á byggingarreit auk þess sem hægt er að byggja bílskúr á lóðinni. Eign sem býður upp á marga mögulega í rótgrónu hverfi. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl.3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Hjallavegur 14

104 Reykjavík
57.400.000 kr.1.040 þ./m²
Hæð1 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundHæðStærð55,2 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20177221Fasteignamat45.500.000 kr.Brunabótamat26.200.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 2 myndir

Upp ↑