fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Los Altos/Los Balcones
1 af 13

Um eignina

Spánarheimili kynnir:  Flottur íbúðakjarni í byggingu í Los Altos sem samanstendur af 4 fjölbýlishúsum með íbúðum á efri og neðri sérhæðum, fallegum grænum svæðum og sameiginlegri sundlaug. Þessi kjarni verður alveg aflokaður og hver íbúð kemur með einkabílastæði á bílaplani inn í kjarnanum. Þessi íbúðakjarni er staðsettur við saltvatnið í Torrevieja og hafa íbúar þá fallegt útsýni yfir bleika saltvatnið. Um er að ræða íbúðir á neðri hæðum með einkaverönd og íbúðir á efri hæðum með einkaþaksvalir.  Einnig bjóða þeir upp á takmarkað magn af íbúðum á neðri hæðum sem koma með kjallara, þar sem þú getur verið með afþreyingarherbergi, auka stofu, svefnherbergi. Frá kjallaranum ertu með aðgengi út á verönd. Hver íbúð er hönnuð í nútímalegum stíl með opnu rými þar sem stofan og eldhúsið er. Það er hægt að fá íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum.  Stærð íbúða er frá 88 m2 - 95 m2  Verð frá 250.000€ - 280.000€ Nánar um svæðið:  Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. --- Eignarnúmer: 2012 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170003/exciting-new-residential-complex-in-los-altos/

Spánarheimili kynnir - Los Altos/Los Balcones

1053 Spánn - Costa Blanca
38.100.000 kr.433 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð88 m²Herbergi4BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 13 myndir

Upp ↑