fasteignasölur.is
Reynihraun 2
1 af 12

Um eignina

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Reynihraun 2, Bifröst, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 2ja herbergja raðhús byggt árið 2002 úr steinsteyptum einingum. Eignin er 42,9 fm að stærð skv. skráningu HMS. Sameiginleg geymsla er í miðu hússins sem er skipt niður í afmörkuð geymslusvæði
 fyrir hverja eign. Geymslusvæði eignarinnar er um 5 fm að stærð og utan skráðra fermetra. Hitaveita er á svæðinu. 

Nánari lýsing:

Stofa og eldhús mynda alrými. Eldhúsinnrétting með eldavél í innréttingu. Stæði fyrir þvottavél í líítilli innréttingu á gangi. Baðherbergi er endurnýjað með dúkaflísum á gólfi og fibo-tresbo á veggjum, upphengdur vaskur í innréttingu, sturtuklefi og salerni. Svefnherbergi er bjart og rúmgott. 

Eignin hefur nýlega verið nokkuð endurnýjuð, nýtt gólfefni á öllum gólfum, parket á öllum gólfum nema dúkflísar í baðherbergi, baðherbergi mikið endurnýjað, íbúðin máluð að innan og utan. 
 
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi.  Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna. Margvísleg þjónusta er á svæðinu s.s. leikskóli, hótel með veitingastað og golfvöllur.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Nes fasteignasala
18.800.000 kr.438 þ./m²
+67,1% á 5 árum
15. september 2021Fyrsta sala
11.250.000 kr.262 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Reynihraun 2

311 Borgarnes (dreifbýli)
18.800.000 kr.438 þ./m²
Rað-/parhús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2001TegundRað-/parhúsStærð42,9 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22544322Fasteignamat14.350.000 kr.Brunabótamat28.350.000 kr.
Skráð hjá
Nes fasteignasala
HeimilisfangBorgarbraut 57, 310Sími497-0040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑