1 af 23
Um eignina
Nýtt á skrá! Langholtsvegur 34 Reykjavík - Afar glæsileg og sjarmerandi 3ja herb. íbúð með sérinngangi.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara í vel viðhöldnu tvíbýli við Langholtsveg 34 í Reykjavík. Íbúðin er 73,2 fermetrar að stærð, rúmgóð með sérinngangi.
Húsið lítur vel út að utan og með nýlegum gluggum/gleri. Þakið var endurnýjað á árunum 2017-2018 og grindverk á sama tíma. Fallega gróinn afgirtur garður með tyrfðum flötum sunnan og vestan megin á lóðinni og fallegum gróðri. Árið 2024 voru tröppur og aðgengi að íbúð endursteypt og húsið drenað vestan megin við hús (við bakgarð).
Baðherbergi var endurnýjað árið 2018 (innrétting, vaskur, spegill og blöndunartæki við vask endurnýjað á síðustu þremur árum) og var skipt um öll gólfefni íbúðar á sama tíma. Gólfhita var komið fyrir í forstofu, eldhúsi og baðherbergi. Skápar voru endurnýjaðir fyrir þremur árum síðan. Lagnir voru myndaðar árið 2018 og var frárennsli frá eldhúsi þá lagfært. Á sama tíma voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Þá hafa ofnar og rafmagnstafla verið endurnýjuð. Auk þess er nýlega búið að endurnýja borðplötu, vask, blöndunartæki og uppþvottavél í eldhúsi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi, gólfhita og skápum sem ná upp í loft.
Hol: Með vinyl parketi á gólfi. Búið að koma fyrir góðri vinnuaðstöðu í holi og fallegu timburverki sem skilur vinnuaðstöðu frá gangi.
Stofa: Er rúmgóð með vinyl parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs.
Eldhús: Með flísum á gólfi, gólfhita og fallegri eldhúsinnréttingu. Flísar á mili skápa, innb. uppþvottavél og keramik helluborð. Stál bakaraofn, vifta, lýsing undir skápum og gluggi til suðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með vinyl parketi á gólfi, skápum á heilan vegg og glugga til austurs.
Svefnherbergi: Með vinyl parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2018. Með flísum á gólfi og gólfhita. Flísalögð sturta og vönduð innbyggð Grohe blöndunartæki. Upphengt salerni, innrétting við vask og gluggi til vesturs.
Geymsla: Er inn af íbúð með hillum og þaðan er gengið inn í sameiginlegt rými þar sem kjallaraíbúð hefur fengið að vera með þvottavél.
Um er að ræða virkilega fallega og sjarmerandi íbúð á frábærum og eftirsóttum stað við Langholtsveg í Laugardalnum þaðan sem stutt er í alla verslun, þjónustu og fallegar hjóla/gönguleiðir. Leikskóli, grunnskóli og menntaskóli í göngufjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson löggiltur fasteignasali, í síma 849-0672, tölvupóstur heimir@fastlind.is

Verðsaga
7 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
59.900.000 kr.818 þ./m²
−0,2% á 1 ári
26. júní 2026Þinglýstur kaupsamningur
60.000.000 kr.820 þ./m²
+39,5% á 5 árum
6. ágúst 2021Þinglýstur kaupsamningur
43.000.000 kr.587 þ./m²
+16,2% á 1 ári
18. júní 2020Þinglýstur kaupsamningur
37.000.000 kr.505 þ./m²
+21,3% á 4 árum
22. nóvember 2016Þinglýstur kaupsamningur
30.500.000 kr.417 þ./m²
+28,2% á 2 árum
27. ágúst 2014Þinglýstur kaupsamningur
23.800.000 kr.325 þ./m²
+29,6% á 4 árum
17. september 2010Þinglýstur kaupsamningur
18.367.000 kr.251 þ./m²
+0,4% á 3 árum
21. desember 2007Fyrsta sala
18.300.000 kr.250 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Langholtsvegur 34
104 Reykjavík
59.900.000 kr.818 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1948TegundFjölbýlishúsStærð73,2 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20179521Fasteignamat56.400.000 kr.Brunabótamat35.050.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 23 myndir
Upp ↑