Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Fallegt einbýlishús með 3 svefnherbergjum, tilbúið til afhendingar!
Fallegt einbýlishús sem er tilbúið til afhendingar og fullbúið húsgögnum á flottum stað í Ciudad Quesada, vinsælu íbúðarhverfi. Cuidad Quesada býður uppá alla nauðsynlega þjónustu, eins og matvöruverslanir, banka, apótek, heilsugæsla og frábærann skóla. Húsið er 144 m2 með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og opnu eldhúsi með fallegri og stórri stofu. Einkasundlaug og flottur garður með einka bílastæði á lóð.
Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s GoKart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.
Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://www.perlainvest.com/ic/soluskra/costa-blanca-su-ur/ciudad-quesada/fallegt-einbylishus-me-3-svefnherbergjum-tilbui-til-afhendingar-803.html
Ref: V759
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Fallegt einbýlishús tilbúið til afhendingar
Allar 44 myndir
Upp ↑










































