fasteignasölur.is
Langirimi 28
1 af 30

Um eignina

Langirimi 28 (Sumarhús í Grímsnes- og Grafningshrepp – ca 50 min frá Reykjavík - Leigulóð 6.550 fm )
Um er að ræða sumarbústað með útsýni yfir Laugarvatn og Heklu.   Húsið er 64,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Bústaðurinn er nýlega yfirfarinn, búið að setja ný blöndunartæki, sturtuklefa, skáp, vask og spegil á baði.  Nýlegur rafmagnshitapottur.
Húsið stendur á 6.550 fm leigulóð. 

Rafmagnshlið að svæðinu.

Komið er inn í forstofu með fallegum gangi inn í aðalrými. 
Baðherbergið er með nýlegum sturtuklefa, vask og skáp, spegill með ljósi og klósett. 
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, eitt með kojum (svefnpláss fyrir 4) og svo er hjónaherbergið með fataskáp. Stórt svefnloft sem rúmar ca 6-8 manns en er notað sem geymsla í dag.
Eldhúsið er opið við stofu og með góðri innréttingu, uppþvottavél, nýlegum blöndunartækjum, eldavél með bakaraofni ásamt, ískáp og örbylgjuofni.
Frá alrými er útgengi út á timburverönd með glæsilegt útsýni.
Góður sólpallur með rafmagnspott. 
Stórt bílastæði er við húsið og gott aðgengi er að bústaðnum.

Bústaðurinn hefur verið í skammtímaleigu undanfarið með góðum árangri, mögulegt er að taka yfir bókanir.

Skipulag og möguleikar til útleigu:
Samkvæmt samþykktri deiliskipulagsbreytingu fyrir Langarima í landi Þóroddsstaða er heimil gisting í flokki I og II á svæðinu, að uppfylltum skilyrðum skipulags og með tilskildum leyfum.
Samkvæmt upplýsingum seljanda er gistileyfi fyrir sex gesti í bústaðnum.
Skipulagsskilmálar gera jafnframt ráð fyrir aukahúsi, svo sem svefnhúsi eða geymslu, allt að 40 m² innan byggingarreits, háð nýtingarhlutfalli og viðeigandi samþykktum.

Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., sími: 775 5805  / email: runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
37.500.000 kr.585 þ./m²
+50,0% á 5 árum
30. júlí 2021Þinglýstur kaupsamningur
25.000.000 kr.390 þ./m²
+37,4% á 3 árum
1. janúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
18.200.000 kr.284 þ./m²
+51,7% á 2 árum
8. ágúst 2016Fyrsta sala
12.000.000 kr.187 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Langirimi 28

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð64,1 m²Herbergi5Svefnherb.2Baðherb.1
37.500.000 kr.585 þ./m²
Byggingarár2005InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2283842Fasteignamat31.950.000 kr.Brunabótamat36.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑