1 af 34
Um eignina
ÁRBORGIR SELFOSSI S: 482-4800 kynna í sölu;
Bjarta og vel skipulagða íbúð á annarri hæð í nýju fjölbýli í nýjum miðbæ á Selfossi.
Húsið er steypt, klætt að utan með málaðri klæðningu og er litað járn á þaki. Íbúðin er á annarri hæð, 81m2 að stærð og skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu, eldhús og geymslu.
Nánari lýsing:
Flísar eru á gólfi í geymslu og þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er innrétting með quartzsteini á borði og walk-in sturta.
Parket er á gólfi í forstofu og herbergjum og eru skápar í báðum herbergjum og forstofu.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þar er parket er á gólfi. Í eldhúsi er góð innrétting með quartzsteini á borðum og innbyggðum tækum. Hurð út á svalir er í stofu.
Allar innréttingar í íbúðinni eru sérsmíðaðar af Selós.
Aukin lofthæð er í íbúðinni og er hún mjög vönduð og falleg.
Íbúðin er svansvottuð og loftræstikerfi er í allri íbúðinni. Græn fjármögnun í boði.
Íbúðin er í húsi sem byggt er að fyrirmynd á svonefndu Flygenringshúsi byggt 1906. Um sögu þess segir meðal annars svo: Haustið 1906 reistu hjónin Ágúst Flygenring og Þórunn Stefánsdóttir stórt og glæsilegt tvílyft hús í Hafnarfirði. Á austurgaflinum var byggð forstofa með turni. Fjölskyldan flutti inn á efri hæð og ris en á jarðhæð var aðstaða fyrir verslunarrekstur, útgerð og fundahöld. Þau hjónin bjuggu í húsinu til 1930 en eftir það hófst þar Hótelrekstur með danssal sem varð mjög vinsæll meðal bresks og síðar bandarísks setuliðs á stríðsárunum. Seinna var Kaupfélag Hafnarfjarðar í húsinu sem var rifið 1970.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga fasteignasölu.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Árborgir - Fasteignasala
66.900.000 kr.826 þ./m²
+40,0% á 4 árum
6. apríl 2022Fyrsta sala
47.800.000 kr.590 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Brúarstræti 5
800 Selfoss
66.900.000 kr.826 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð81 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF251775010Fasteignamat54.550.000 kr.Brunabótamat47.500.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 34 myndir
Upp ↑