fasteignasölur.is
Skriðustekkur 16
Nýtt
1 af 188

Um eignina

Miklaborg kynnir: Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með 3 aukaíbúðum sem hefur fengið gott viðhald. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er húsið skráð 241,1 fm en samkvæmt mælingum frá Arkþing sem eigandi lét framkvæma árið 2019 er húsið 336,2 fm. Samkvæmt þeirri mælingu er neðri hæðin 164 fm og efri hæðin 172,2 fm. Á efri hæð er 4ra herbergja íbúð með útgengi á stóran afgirtan pall með heitum potti. Neðri hæðinni hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir sem allar eru með sérinngangi.



Nánari lýsing

Efri hæð

Komið er inn um sérinngang í hol sem leiðir að öllum vistarverum íbúðarinnar. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Fyrir framan baðherbergi er opin þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem hægt er að loka af. Á svefnhergisgangi eru þrjú góð svefnherbergi. þar af er stór hjónasvíta með baðherbergi með góðri innréttingu, 'walk in' sturtu og upphengdu salerni. Eldhús er með eyju, góðu vinnu- og skápaplássi, ofni í vinnuhæð og er opið við stofu. Stofan er stór og björt og þaðan er útgengt á sólríkan pall með heitum potti sem snýr í suður.

Neðri hæð

Aukaíbúð 1

Er 3ja herbergja íbúð með sérinngang á vinstri hlið hússins. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi með 'walk in' sturtu og fullbúið eldhús. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.

Aukaíbúð 2

Er 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á hægri hlið hússins. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og fullbúið eldhús með tengi fyrir þvottavél.

Aukaíbúð 3

Er stúdíóíbúð með sérinngangi á hægri hlið hússins. Íbúðin skiptist í alrými með svefnaðstöðu, stofu og fullbúnu eldhúsi og baðherbergi með 'walk in' sturtu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi.

Allar nánari upplýsingar veita

Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
177.500.000 kr.528 þ./m²
+45,5% á 4 árum
28. október 2022Þinglýstur kaupsamningur
122.000.000 kr.506 þ./m²
+93,7% á 7 árum
3. desember 2015Fyrsta sala
63.000.000 kr.261 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skriðustekkur 16

109 Reykjavík
177.500.000 kr.528 þ./m²
Einbýlishús8 svefn · 5 bað
Byggingarár1968TegundEinbýlishúsStærð336,2 m²Herbergi7InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2047179Fasteignamat145.850.000 kr.Brunabótamat124.550.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 188 myndir

Upp ↑