fasteignasölur.is
Starengi 54
1 af 111

Um eignina

Miklaborg kynnir: Einstaklega fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús á þessum eftirsótta stað í Grafarvogi. Eignin er skráð 182,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, en þar af er bílskúrinn skráður 32,6 fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi,  þvottahús og bílskúr. Húsið er með fallegum garði og timbur verönd sem að hluta ef yfirbyggð með heitum potti. Steypt bílaplan og stétt með snjóbræðslu, á bílaplani er hægt að leggja fjórum bílum auk þess sem pláss er meðfram húsinu til að leggja ferðavagni. Stutt er í ýmsa þjónustu svo sem leik- grunn - og framhaldsskóla, verslanir, sundlaug, Egilshöll og alla helstu þjónustu. Húsinu hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum og hefur meðal annars forstofa verið stækkuð auk garðskúrs og því eru þetta sennilega yfir 200 fm í dag. Í garðskúr er rafmagn, heitt og kalt vatn, þar er einnig sturta og klósett í eigninni eru því í raun þrjú baðherbergi.

Nánari lýsing Komið er inn í stóra og bjarta forstofu en úr henni er gengið annars vegar inn í bílskúr og hins vegar í húsið sjálft, þegar komið er inn úr forstofu er gegnið inn í alrými og þaðan inn í önnur rými eignarinnar en þau eru:

4 rúmgóð svefnherbergi.

Geymslu/þvottahús með góðu skápaplássi og borði undir þvottavél og þurrkara sem setur tækin í þægilega vinnuhæð.

Gestaklósett sem er flísalagt með sturtuklefa.

Baðherbergi sem var endurnýjað árið 2019 flísalagt í hólf og gólf með fallegri hvítri innréttingu, upphengdu salerni og innbyggðum blöndunartækjum, sturtu og baðkari.

Sjónvarpshol.

Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, miklu vinnuplássi og góðu skápaplássi, helluborð, gufugleypir og ofn í vinnuhæð ásamt glugga með opnanlegufagi.

Stofa með stórum gluggum sem rúmar vel stórt borðstofuborð og góða setustofu.

Úr stofu er gengið út á yfirbyggða timburverönd með heitumpotti sem bæði stækkar stofuna eykur nýtingarmöguleika þessa svæðis árið um kring, þaðan er síðan gengið annars vegar út á stóra timburverönd með skjólveggjum og hins vegar inn í upphitaðann garðskúr með rafmagni, sturtu og klósetti.

Gólfefni: flísar og parket.

Eignin er öll hin snyrtilegasta bæði að innan sem utan.


Ath. Seljandi skoðar að taka ódýrari íbúð upp í.


Allar frekari upplýsingar:

Árni Gunnar Haraldsson lgf arnig@miklaborg.is 8614161

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
152.900.000 kr.839 þ./m²
+154,8% á 10 árum
11. október 2016Þinglýstur kaupsamningur
60.000.000 kr.329 þ./m²
+22,4% á 3 árum
2. maí 2013Fyrsta sala
49.000.000 kr.269 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Starengi 54

112 Reykjavík
152.900.000 kr.839 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2000TegundEinbýlishúsStærð182,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2244845Fasteignamat131.050.000 kr.Brunabótamat94.950.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 111 myndir

Upp ↑