fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Alicante and surrounding areas
1 af 7

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Nýr og glæsilegur íbúðakjarni í Santa Pola, aðeins um 100m frá Tamarind ströndinni. Kjarninn samanstendur af 3 íbúðabyggingum með alls 95 íbúðum. Í blokk 1 og 3 eru 35 íbúðir og í blokk 2 eru 25 íbúðir. Stærð íbúða er á bilinu 80 til 106 fm og svalir eru frá 14 til 17 fm. Íbúðirnar eru einstaklega bjartar og opnar og í boði eru 2 eða 3 svefnherbergja eignir. Að auki er hægt að fá penthouse íbúðir með frábæru útsýni yfir miðjarahafið og allt að 100 fm. einka þaksvölum með nuddpotti, útieldhúsi og sturtu. Í kjarnanum er glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður, sólbaðsaðstaða, útisturtur og leiksvæði fyrir börn. Kjarninn er lokaður og eru bílastæði innan lóðar. Verð frá 375.000 Tilbúið til afhendingar í lok árs 2024.   Nánar um svæðið: Bærinn Santa Pola er staðsettur á Costa Blanca suður í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð suður af flugvellinum í Alicante. Santa Pola er þekkt fyrir sögulegar minjar, merkilega höfn sína, vötn, saltminni og strendur undir merkjum Bláa fánans; og tákn um gæði. Santa Pola er þekkt fyrir fjölbreytt landslag, allt frá útsýni til villtra og síbreytilegra sandalda og svo til fjarlægra fjalla. Höfn bæjarins er einstök, staðsett í miðju kastala og er umlukin einstakri náttúru. Ferðaþjónusta er meginatvinnuvegur Santa Pola en þar er að finna mikla saltverksmiðju sem er mikið kennileyti þar um slóðir. Í höfninni eru að staðaldri mesta magn fiskibáta allra hafna við Miðjarðarhafið. Santa Pola tengjast svo nokkrar dásamlegar strendur, þar á meðal yfir 4 kílómetrar af fínum sandi og kristaltæru vatni. Við Santa Pola er tilvalið að iðka fjölbreytilegar sjóíþróttir: Brimbretti, siglingar, sund, veiði, þotur og fallhlífarstökk við ströndina. Íbúar í Santa Pola eiga kost á líflegu félagslífi allt árið, bæði vegna fjölþættrar þjónustu sem þar má finna og svo nálægðar við borgina Alicante sem er staðsett aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð.   Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 1340 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/162391/elegant-beachfront-apartments-in-santa-pola/

Spánarheimili kynnir - Alicante and surrounding areas

1053 Spánn - Costa Blanca
54.900.000 kr.686 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð80 m²Herbergi4LyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 7 myndir

Upp ↑