fasteignasölur.is
Háteigur 3
1 af 32

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir gott einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Háteig 3 í Keflavík.

Um er að ræða gott einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað í Keflavík  sem skiptist í anddyri, 5 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, stofu, sjónvarpshol, eldhús, þvottahús og bílskúr. Eignin er 179,4 fm í raun en samkv. Þjóðskrá er það skráð 138 fm. íbúðarrýmið er 141,5 fermetrar og bílskúrinn 37, Húsið er vel staðsett í grónu hverfi og er stutt í ýmsa þjónustu svo sem skóla og leikskóla. Garðurinn er snyrtilegur og er þar mjög gott skjól og nýlega hefur verið settur heitur og kaldur pottur á baklóð.

Neðri hæð: 

Forstofa Flísar á gólfi og er stigi upp á efri hæð á hægri hönd þegar komið er inn í rýmið.
Stofa Góð stofa með parketlögðu gólfi.
Eldhús Flísalagt gólf. Eldri innrétting hvít og brún. Bakaraofn og helluborð. 
Svefnherbergin eru Þrjú  á neðri hæðinni og er parket á gólfi á þeim öllum. Í tveimur herbergjanna eru fastir fataskápar.
Baðherbergið hefur flísalagt gólf og veggi að hluta. Eikarinnrétting, upphengt salerni og rúmgóð sturta.
Þvottahús Þvottahús er inn af eldhúsi og er þar flísalagt gólf og innrétting. Útgengt er út í garðinn úr þvottahúsi.
Bílskúr Bílskúrinn er djúpur og eru hvoru tveggja aksturshurð og einni gönguhurð á hliðinni sem gengið er inn úr garðinun.

Efri hæð:

Svefnherbergin á efri hæð eru tvö og eru bæði parketlögð. Góð geymslurými eru undir súðinni.
Sjónvarpshol Þegar komið er upp á efri hæð er gott sjónvarpshol með parket á gólfi.
Gestasnyrting Flísalagt gólf, salerni og vaskur.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
S. 661-9391 eða 420-4000
halli@studlaberg.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
95.900.000 kr.695 þ./m²
+106,2% á 7 árum
22. júlí 2019Fyrsta sala
46.500.000 kr.337 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Háteigur 3

230 Reykjanesbær
95.900.000 kr.695 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1959TegundEinbýlishúsStærð138 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20882603Fasteignamat70.850.000 kr.Brunabótamat65.960.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑